Hvernig vel ég tölvu?

Þegar þú skoðar tölvu er auðvitað mikilvægt að gera verðsamanburð, en verðið eitt segir þó alls ekki alla söguna. Mikilvægt er að skoða hvað hver tölva inniheldur eins og t.d örgjörvann, skjákortið, minnið og fleira.

Við erum búin að taka saman nokkur mikilvæg atriði sem gott er að hafa í huga þegar þú ferð af stað í tölvuleit.

 

Skjárinn:
Skjárinn gefur þér sýn á þau verkefni sem þú ert að vinna eða annað efni sem þú spilar á tölvunni.
Ef þú ætlar að horfa á myndir er mikilvægt að hafa HD upplausn að lágmarki 1366x768.
Það sama gildir um önnur verkefni eins og t.d. ritvinnslu og töflureikni. Gott er að hafa HD upplausnina til að geta sett upp tvær síður hlið við hlið í ritvinnslunni eða að vinna með fleiri dálka í töflureikni.
Í leikjum eða myndvinnslu er æskilegt að vera með 1600 punkta upplausn eða meira.

 

Örgjörvi:
Örgjörvinn er heili vélarinnar og ræður m.a. vinnsluhraða hennar.
Reikna má með að meðaltölvunotandi sé með opna 4 glugga í einu eða fleiri.
Ef keyrt er Windows 7 er lágmark að hafa Dual Core 2GHz örgjörva.
Dual Core örgjörvi er nóg til að leysa öll almenn skólaverkefni, vinnslu á netinu, afspilun/skoðun mynda og samskipti á netinu. Ef verkefnin innifela forritun, myndvinnslu, leiki eða keyrslu á mörgum forritum á sama tíma er æskilegt að velja Intel i örgjörvann í vélina.

 

Skjákort:
Skjákortið sendir upplýsingar til skjásins sem skjárinn birtir þegar tölvan er í notkun.
Mikilvægt er að athuga hvort skjákortið sé með sjálfstæðan örgjörva og sjálfstætt minni eða er það innbyggt í kubbasett fartölvunnar? Í öllum tölvum er kubbasett, kubbasettið er braut á milli allra tækjanna í vélinni. Tækin eru: harði diskurinn, skjákortið, minnið o.fl. Skjákort sem er innbyggt í kubbasett vélarinnar notar vinnsluminnið sem er í vélinni. Við það minnkar innra minnið sem því nemur. Mikilvægt er að hafa sjálfstætt skjákort og minni t.d ef þú vilt spila myndir/þætti eða fyrir grafíska vinnslu. Sjálfstætt skjákort og minni er nauðsynlegt til að spila leiki.

 

Minni:
Innra minni tölvunnar er það geymslupláss sem örgjörvinn notar þegar unnið er að verkefnum á vélinni. Ef keyrt er Windows 7 er lágmark að hafa 2GB af innra minni en 3-4GB æskilegt.
2GB ætti að duga fyrir einfaldari vinnslu eins og verkefni undir 30 blaðsíðum í ritvinnslu og töflu með minna en 10 formúlum. En ef keyra á fleiri forrit á sama tíma, stærri verkefni eða leiki er nauðsynlegt að hafa 4GB.

Harður diskur:

Hann er geymslupláss fyrir stýrikerfi, forrit, vinnsluefni, myndir, hreyfimyndir eða hvað annað efni sem unnið er með í vélinni. Æskilegt er að harði diskurinn sé ekki minni en 320GB.

 

Tengi á tölvu:
Fyrir utan USB og SD slot er æskilegt að hafa HDMI tengi.
Mörg heimili hafa fjárfest í flatsjónvörpum á undanförnum árum. Flest þessarra tækja eru með HDMI tengi. Góður kostur er að hafa HDMI tengi á fartölvunni svo hægt sé að tengja tölvuna við sjónvarpið og spila þannig myndir/þætti og annað efni á flatskjáinn.

 

Stýrikerfi:
Boðeind mælir með Windows 7 Home Premium fyrir einstaklinga og Windows 7 Professional fyrir fyrirtæki.